All dressed up and no place to go...
Könnun
Hvernig lýst þér á Glasgow planið
Rosa vel, good plan
6 atkvæði

Nokkuð vel
1 atkvæði

ok
0 atkvæði

Æ kannski ekki alveg nógu vel
0 atkvæði

Glötuð hugmynd, hvað ertu að spá?
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 7
11.09.2008 16:06:02 / ingaer

Nýtt blogg....


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 09:15:17 / ingaer

Gullmoli.. gat ekki stillt mig..

..um að setja eftirfarandi quote sem ég stal af vísi

„Það eru hlutir að birtast hér sem áður voru bara hugsanir og tilfinningar. Það sem fólk getur tekið með sér eða lært af er að ef maður hugsar bara jákvætt - við gerðum það. Allt svona - neikvæðni *bíb* sem því fylgir og allt, bara, ekki leyfa því að gróa. Bara að vera ógeðslega pósitívur, sérstaklega þegar maður hugsar um hvað maður er að fara í."

„Vera ógeðslega þakklátur fyrir að fá að spila hérna og fá að vera hérna. Geðveikir leikar. Gratitúd fyrir það, að vera hérna. Njóta þess að fá að taka einn svona púls í 60 mínútur. Þó þú deyir hérna á vellinum, þá deyrðu lifandi. Það voru allir í fílingnum, ekkert að hugsa um hvort við myndum vinna eða *bíb* skiluru. Og njóta þess að vera á þessum velli."

„Svo unnum við vinnuna okkar mjög vel. Guðmundur með sideline-ið sitt og analýserandi endalaust, frábært team þar á ferð."

„Við vorum að klifra þetta fjall og það voru tvær leiðir í dag. Önnur var *bíb* og hin var upp. Bara ógeðslega gaman og þetta átti bara að gerast einhvern megin. Mér líður eins og Morfeus. Mér líður ógeðslega vel í þessari keppni, alveg frábær."

Hrafnkell: Hungrið svo sannarlega til staðar og kraftur í hópnum?

„Já, já. Við höfum sem betur fer tvo daga og tökum klukkutíma í að fagna þessu og vera glaðir og allt það. Svo bara dettum við aðeins í chill-zone og svo byrjum við aðeins að analýsera þetta, strax í kvöld í raun."

„Þekkjum auðvitað Spánverjana vel enda búnir að spila oft á móti þeim og við erum betri en þeir ef eitthvað er. Verðum að halda áfram á þessari braut og vera glaðir, njóta hvers leiks. Sjá svo hvað gerist."

Getið þið hvaða snillingur á í hlut! Ótrúlega margt til í þessu :)
kv. Inga

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 19:47:43 / ingaer

mikilvægt...

...ótrúlega mikilvægt að því mér finnst að finna sér stað í lífinu sem maður er ánægður með. Það getur reyndar verið ótrúlega snúið því eðlilega er alltaf ákveðin pressa á mann frá samfélaginu að falla inn í fjöldann. Ja kannski ekki endilega fjöldann en amk þinn fjölda. Að vera eins og fólkið sem þú umgengst. Td ef allir vinirnir eru komnir með börn þá ert þú orðinn utangátta án þess, ef systkynin eru öll háskólamenntuð þá er örugglega soldið erfitt að vera sá eini sem menntar sig ekki. Það er nefnilega málið... soldið erfitt að vera ekki með í "norminu". Þrátt fyrir að við viljum öll telja okkur sérstök þá er mjög erfitt að vera ekki eins og hinir. Þú færð einfaldlega ekki að vera með. En hvað um það þá held ég og vona að ég sé að stíga góð skref í áttina að stað sem ég get verið sátt við. Fyndið eins og ég var kominn með geðveikan skólaleiða í lokinn á B.Sc-inum og gat ekki hugsað mér að halda strax áfram þá er ég núna þvílíkt spennt fyrir því að byrja í nýjum skóla. Meira segja að hugsa um hvort það gæti verið sniðugt að læra meira en master.... taka jafnvel líka MBA eða/og Phd. Doktor Inga hversu vel hjómar það ;) rosa kúl... róleg á því best að taka eitt í einu. Það sem mér finnst líklega hvað skrítnast að ég hef ekki hugmynd um hvað ég verð að gera eftir ár sem er eiginlega ferlega scary og spennandi og meira scary! En já rosalegar vangaveltur í gangi hérna..... veit eiginlega ekki hvað ég er að röfla so...
Eigið góða helgi dúllurnar mínar ;)
Doctor Erlingsdóttir


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 17:26:41 / ingaer

Ítalíuferð

Best að rumpa af nokkrum minnispunktum um ítalíuferðina... sem var geðsjúk by the way!

Gurra og Hanna komu að sækja mig upp úr 14 á fimmtudeginum 29.maí og ferðinni var heitið til Keflavíkurflugvallar. Þegar búið var að rasa um flughöfnina og versla smá þá var drifið sig á barinn (of course) og fengið sér einn eða tveir kokteilar með restinni af vsó liðinu sem við hittum í fríhöfninni. Þar sem við sátum og supum okkar drykki og blöðruðum saman þá fundum við jarðskjálftan ríða yfir. Fljótlega bárust stórlega ýktar fréttir um jarðskjálfta sem væri um 6,9 á richter kvarða og átti upptök rétt hjá Selfossi. Auðvitað kom smá magaskjálfti í mína þar sem jú öll fjölskyldan mín er á Selfossi. Þetta var sem betur fer um 4 leytið svo ég náði í Pabba heima en það var ekki séns að ná í gsm síma. En ég náði í Pabba og hann leiðrétti fréttirnar aðeins 6,1 er aðeins soldið mikið mikið minna en 6,9! En það var fullt af dóti sem brotnaði heima, sjónvarp sem eyðilagðist og fleira en sem betur fer allt bara dauðir hlutir! Manni leið nú ekki beint vel að vera svona langt frá fólkinu sínu og svona smá áhyggjur og taugaæsingur í gangi en það gekk yfir.
Komum til Rapallo um 2 leytið af því mig minnir og í rosalega flott hótel! 5 stellur ekki meira né minna. Herbergin voru mjög mismunandi en öll mjög flott. Daginn eftir var aðeins litast um á hótelinu og svo farið í siglingu um cinque terre. En það eru 5 smábæjir sem eru staðsettir utan í fjöllunum við riveríuna. Veðrið var ekkert sérstakt en maður þrjóskaðist þó ansi lengi við á hlýrabolnum. Stoppuðum í bæ sem heitir Monterosso og þar kynntumst við Gurra og Hanna snilldarvíni sem átti eftir að litaferðina soldið rauða. Brachetto er svona rautt desertvín með smá gosi. Hrikalega gott!!!
 
Anyhow áfram hélt ferðin og næst stoppuðum við í bæ sem tilheyrir ekki beint cinque terre og heitir Santa Margarita eftir að hafa rúntað um höfnina í Porto Fino þar sem ríka liðið á hús. Í Santa Margarita fengum við okkur meira Brachetto og þegar farið var aftur um borð í bátinn var borðað þvílíkt fínt hlaðborð og drukkið meira. Eins og íslendingum einum er lagið var svo heldur betur tekið á því ásamt því að spila á gítar og syngja. Þvílíkur stemmari. Þegar komið var aftur til Rapallo voru allir í þvílíkum gír svo það endaði þannig að Einar boss, Smári Ó og Guðjón enduðu í höfninni. Hluti af hópnum fór svo á bar og þar var djammað langt fram eftir og mikið mikið hlegið.

http://lh6.ggpht.com/ingaerlendis/SFZHRPgPuwI/AAAAAAAAAW4/OTzzokfNy_M/IMG_4676.JPG

Á laugardeginum var skroppið í bænum eftir að hafa fengið sér morgunverðarhlaðborð og kampavín með því (í alvörunni) svo var hangið við sundlaugina sem var mjög köld. Sumir gerðust svo djarfir að fara líka í sjóinn sem var víst enn kaldari.
Árshátíðin var svo um kvöldið og byrjaði með smá pre party í herberginu hjá Kristjáni og Beggý, en þau voru með rosalegar svalir sem hægt var að hanga úti á. Svo var dryfið sig niður í fordrykk og héldu sig flestir úti við í frábæru veðri á svona terrace með rosalegu útsýni yfir miðjarðarhafið.

Þetta var eiginlega eins og maður væri staddur í einhverri kvikmynd. Allir í galaklæðnaði með kampavín við hönd. Rosa flott!!! Ekki tók neitt verra við þegar inn var haldið og borðað. 5 rétta máltíð og þjónar á hverjum fingri. usss...... það var tekin smá Tyra á þetta ;)

Það var sko haldið áfram langt fram á nótt og Beggý fékk að halda eftirparty líka :)
Sunnudagurinn fór líka í þvílíkt chill.... og endaði eiginlega með frekar fyndinni tilraun til að fara út að borða svon 17 saman. Ekki að gerast! Hægara sagt en gert að fá borð fyrir 17 manns. Það endaði líka þannig að við skiptum hópnum upp og kvöldið var bara tekið rólega.
Á mánudaginn drifum við okkur af stað með lest til Genova þeas ég, Hanna Sigga og Gurra. Andrea (pabbinn í fjölskyldunni sem ég var au-pair hjá) kom og sótti okkur og gat ekki gert annað en grín að farangrinum okkar sem var svona aðeins í meiri kantinum. Drifum okkur svo heim til fjölskyldunnar minnar í Via Puggia og borðuðum æðislegan hádegismat með fjölskyldunni. Ekkert smá gaman að hitta gengið!!! Kíktum svo út og skoðuðum okkur aðeins um í Genova og fórum svo aftur heim í kvöldmat sem var sko ekki síðri en hádegismaturinn.
Á þriðjudaginn keyrði Stefania okkur út á flugvöll til að sækja bílaleigubílinn okkar. Svo var brunað af stað í suður átt eftir smá klúður við að komast út úr Genova :)
Við keyrðum ítölsku riveríuna eins og hún lagði sig og í átt að Volterra sem er rétt sunnar en Flórens. Fórum út að hraðbrautinni í Toscani og keyrðum í gegnum sveitina að Volterra sem er lítið og krúttlegt þorp. Þar sáum við m.a. höggmyndasmiði og lentum í jarðarför. Huhummm.... sæti höggmyndagaurinn :lol:
http://lh6.ggpht.com/ingaerlendis/SFZs43zsSHI/AAAAAAAAAbQ/Gc8cR9Z-b2o/IMG_4704.JPG
Þannig var það að þegar við vorum að keyra út úr Volterra þá var rosaleg umferð og á einum stað beyðgu ALLIR út af. Á hinum vegarhelmingnum á þessum stað var lögga sem var að stoppa umferðina í þá áttina. Einhverja hluta vegna héldum við að verið væri að gera við veginn og að öllum væri vísað á hjáleið (spurning um að vera búin að vinna við veghönnun of lengi). Jæja eins og allir hinir beygðum við út á vegslóðann þar sem bókstaflega var ekið á 20 ef ekki minna. Mér leist reyndar ekkert á blikuna þegar maður sá að fólk var farið að leggja og ganga  í sömu átt og við vorum að keyra. Mér varð að orði að við værum örugglega lentar í einhverri jarðarför. Gurra varð kjánaleg á svipinn og sagði djö á ég eftir að hlæja ef svo er. En já stuttu seinna keyrðum við framhjá kirkjugarði, fullum af syrgjendum. Já það var eiginlega ekkert hlegið neitt rosalega nema þá helst að því hversu miklir aular við værum. Jæja okkur tókst að snúa við og mættm þá eimmitt líkbílnum... huhumm.... á einbreiðum vegi. Sem betur fer var hann búin að skila kistunni af sér...En líkbílinnn með prest í framsætinu bakkaði á undan okkur að einhverjum gatnamótum.... okkur leið vægast sagt kjánalega.
En áfram hélt ferðin og við komumst til Flórens seinnipartinn þennan dag. Í Flórens gistum við hjá Steinþóri vini hennar Gurru sem bjó á efstu hæð í miðbæ Flórens. Smá puð að koma töskuhlössunum upp en það tóks. Þá um kvöldið fórum við 5 saman út að borða á æðislegum mexíkönskum stað sem heitir Tijuana. Þar var ekki slegið slöku við enda mættum við á happy hour og enduðum á því að borða fínan mat og drekka með því 5 könnur af frosnum strawberry margarita. Rosalega gott..... En þjónarnir voru samt örlítið hissa af magninu sem við drukkum. huhumm... íslendingar í útlöndum.
http://lh4.ggpht.com/ingaerlendis/SFZtzlXjwHI/AAAAAAAAAds/OAgbG5fKiNg/IMG_4720.JPG
Við drifum okkur svo á nokkra staði í viðbót og enduðum á stað sem heitir blob. Þar sátum við í mesta sakleysi þegar við heyrðum allt í einu kunnuglega tóna... var þá ekki skímó kominn á fóninn okkur algjölega að óvörum. Það reyndist vera eðlileg skýring á þessu en diskurinn hafði verið skilinn eftir á staðnum eftir íslendingakvöld sem þar var.
Anyhow daginn eftir þá drifum við Hanna Sigga okkur í skoðunarferð meðan Gurra fór og heimsótti fyrrum kennarann sinn. Kíktum á dómkirkjuna og gengum upp í turninn þar. Fórum reyndar upp í ekki alveg réttan turn... en við fengum amk geðveikt útsýni :)  Eftir turninn fengum við okkur ís og  myndavélinni minni var stolið :s  Frekar svekkjandi en sem betur fer ekki það allra alvarlegasta!  Hittum svo Gurru aftur og  kíktum í nokkrar búðir ;) Fórum svo út að borða með Davíð og Frikka og fengum okkur rosalega Fiorentina steik. Hún var huge og ekkert smá góð!


Á fimmtudagsmorgunin fórum við og sóttum bílinn í bílastæðahúsið þar sem við geymdum hann og brunuðum af stað í áttina að Feneyjum. Tókum reyndar rangan exit á hraðbrautinni... vorum samt sem áður á leið í rétta átt svo við fórum bara til Veróna sem er æðisleg og kíktum á Casa della Giulia. Eða húsið hennar Júlíu. Þetta er einskonar safn þar sem búið er að ákveða að Júlía í  og Rómeo og Júlía hafi búið. Haha....  ótrúlega menningarlegt.

En við kíktum þanngað með öllum hinum túristunum. Þegar við vorum búnar að skoða okkur um í Veróna þá keyrðum við í átt að Feneyjum. Rétt fyrir utan Veróna fórum við af hraðbrautinni og villtumst að 4 stjörnu hóteli í Vicenza eða í úthverfi Vicenza. Þar ákváðum við að kíkja á hvað það kostaði þar sem við vorum ekki beint að finna neinn gististað. Í ljós kom að við fengum herbergið mjög ódýrt svona miðað við gæða amk svo við skelltum okkur á það, enda orðnar þreyttar og svangar eftir langan dag. Sjaldan verið svona gott að komast í góða sturtu og borða góðan mat :)
Á föstudaginn drifum við okkur svo loksins til Feneyja.

http://lh6.ggpht.com/ingaerlendis/SFZ1r4cY_lI/AAAAAAAAA7Q/3J20NHDsScE/IMG_4952.JPG

Höfðum fengið skilaboð frá Dröfn og Hring að þau yrðu þar líka á föstudaginn svo þegar til Feneyja kom hittum við þau. Þetta var æðislegur dagur þar sem við borðuðum góðan mat, drukkum vín, fórum í gondólasiglingu og hlustuðum á hljóðprufur undir regnhlífum.

http://lh4.ggpht.com/ingaerlendis/SFZ15VxkPTI/AAAAAAAAA84/WtYkVLjf-io/IMG_4965.JPG


Fengum reyndar smá skúrir en þetta var æði! Fórum á gondóla og gondólagaurinn sagði okkur frá hinu og þessu skemmtilegu um Feneyjar. Sáum hús Casanova og hvernig vatnið er að fara með borgina sem er hreint út sagt ótrúlegt. Mæli eindregið með að kíkja á borgina áður en hún sekkur alveg :)

http://lh4.ggpht.com/ingaerlendis/SFZ29y2SwAI/AAAAAAAABBA/TB4mNzQBQeg/IMG_4996.JPG


Eftir frábæran dag í Feneyjum drifum við okkur aftur af stað og lentum í rosalegri rigningu.... það var bókstaflega ekki hægt að tala saman inn í bílnum það ringdi svo rosalega, það stoppaði reyndar ekki gaurinn sem tók fram úr okkur á rosalegum hraða á gulum lamborghini! Drifum okkur að borða á Autogrill og ákváðum að drífa okkur bara aftur á sama hótel og við vorum á nóttina áður. Vorum svo heppnar að núna var helgartilboð svo það var enn ódýrara en nóttina áður ;) Rosalega gott að fá góðan nætursvefn!
Laugardagurinn var eiginlega ekkert skipulagður vorum eitthvað að spá í að fara að lake garda eða como en ákváðum í staðinn að drífa okkur til Marienello home of Ferrari og kíktum á Ferrari safnið þar og ég komst eins nálægt Ferrari verksmiðjunni og óbreyttur óFerrari eigandi kemst. Semsagt að varðhúsinu þar sem ég bað um leiðbeiningar að Ferrari safninu haha......
En já Ferrari safnið var æði !!!!
http://lh4.ggpht.com/ingaerlendis/SFZ_BjaLkVI/AAAAAAAABQ0/poX2VoEi3hk/IMG_5115.JPG
Ógó gaman að skoða bíla með strákunum.... frekar fyndið svona miðað við 3 stelpur á road trip. Seinnipartinn fórum við svo áleiðis til Milano og enduðum á því að gista í Piacenza. Þegar við drifum okkur niður í bæ til að borða þá dóum við næstum úr hlátri því niður í bæ var rosaleg bílasýning. Við erum að tala um gamla porche-a, Ferrari og fleiri ofurbíla.

Svona til að ljúka þessum rosalega strákadag drifum við okkur á Fratelli bufalo og fengum okkur rosalega steik. Að því loknu fórum við á kaffihús og fengum okkur Brachetto og kokteila. Bara gaman... við Gurra vorum svo bjartsýnar þegar við fórum frá hótelinu að taka ekki með okkur regnhlífar. En þegar við ætluðum að drífa okkur aftur á hótelið þá byrjaði að rigna. Fengum sem betur fer leigubíl fljótlega og drifum okkur á hótelið.
Sunnudagurinn rann upp og við vöknuðum snemma og drifum okkur af stað til Milano. Ótrúlegt en satt en við fundum Stazione Centrali, þar sem við áttum að skila bílnum, frekar auðveldlega, eftir að hafa bara einu sinni spurts til vegar. Það var reyndar svo smá höfuðverkur að finna Hertz en það tókst á endanaum. Hótelið okkar Hotel Berna var svo bara rétt í göngufæri við það sem var æðislega hentugt. Hittum svo pörin Jolla og Ingu og Ómar og Heiðu og drifum okkur niður í bæ. Skoðuðum dómkirkjuna og enn og aftur fór að rigna um svipað leiti og við hittum Dröfn og Hring niður í bæ. Við skelltum okkur öll saman á kaffihús og fengum okkur bjór. Eftir að hafa setið góða stund ákváðum við að finna hm og reyna að versla smá fyrir kvöldið. Það tókst... verlsaði reyndar ekki mikið en aðeins. Þegar við komum aftur á hótelið var skipt yfir í kvöldklæðnað og í hópinn bættust Frikki og Davíð. Við fórum svo ölll 11 út að borða á æðislegum stað, það var þvílíkt borðað!
Eftir að hafa borðað okkur nánast til bana þá drifum við okkur á bar í nágrenninu og þar flutu kokteilar, svo var haldið á annan stað og fleiri kokteilar. Allir voru komnir í grúvið og við af stað á næturklúbb sem átti að vera voða góður... en þar sem það var sunndagur lokaði hann um 2 svo það varð lítið úr því... sem var kannski ágætt. Okkur tókst samt að spjalla til rúmlega 4 um nóttina svo....það var lítið sofið sérstaklega þar sem við vöknuðum um hálf 10 daginn eftir.
http://lh4.ggpht.com/ingaerlendis/SFaHOhw7h4I/AAAAAAAABd4/2i35FzqHFBk/IMG_5208.JPG
Seinasti dagurinn á Ítalíu... við skelltum okkur í búðir og versluðum "örlítið". Það tók okkur ekki mjög langan tíma. Við borðuðum svo seinustu máltíðina á veitingastað sem var á móti hótelinu og drifum okkur svo öll saman út á flugvöll, fengum eitt versta flug heim ever.... það var hreint ótrúlega þröngt um okkur í fluginu en þetta slapp og þó það væru einhverjar tafir vorum við komin heim til íslands um 3 leytið.
Anyhow that's it... hér eru myndir
Arrivaderci
Inga

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 15:59:34 / ingaer

Skósýki.... ég á mjög erfitt ég veit!

Eins og flestir vita þá er hræðilega erfitt að eiga áhugamál sem kostar endalausa peninga. Mörg áhugamál hafa þó þann kost að það er ákveðinn startpakki og svo ertu búinn með mesta útgjaldaliðinn.... en það er ekki svo gott þegar áhugamálið er FÖT! og auðvitað SKÓR!
Það eina sem virðist gerast er að því lengur sem maður þjáist af þessu stórhættulega áhugamáli, eins og ég kýs að kalla það, því dýrari verða FÖTIN og SKÓRNIR!
Núna er staðann þannig að ég er að fara út í skóla í haust og verð því að reyna að leggja smá fyrir og vera hagsýn. Hægara sagt en gert.... Skrapp því miður aðeins út í Smáralind núna rétt áðan. Ég þurfti að fara með gleraugun mín í viðgerð og auðvitað varð ekki hjá því komist að kíkja í "nokkrar" búðir í leiðinni. Ég var búin að kíkja inn í svona 2 búðir þegar ég aulaðist inn í Karen Millen og sá þá.... hina fullkomnu skó! Eða því sem næst, þetta varð amk ást við fyrstu mátun. Þeir eru æði. Fjólublátt satín platform með peeptoe, 11cm hæl sem alsettur swarowski kristöllum. Ég sé þetta svo fyrir mér með geðveika kjólnum mínum á árshátíð á Ítölsku riveríunni. Eina er verðið sem er ekki að gerast fyrir verðandi fátækan námsmann....
Haldið þið að þessir skór verði ekki geðveikir


með þessum kjól...



Segið bara jú því ég veit það ......

Kveðja frá
  manneskjunni sem þarf vafalaust að höggva af sér báðar fætur til að losna við skóþráhyggju KM
Inga


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 21:56:47 / ingaer

Kraftaverkin gerast...

...jamm ísland komst áfram í eurovision svo við getum búist við hverju sem er verið viðbúin!
Þess fyrir utan er alltaf nóg um að vera hjá mér. Fórum á hvannadalshnúk um seinustu helgi sem var algjör snilld. Fengum ágætisveður fyrir utan það að skyggni var lítið sem ekkert sem var frekar gremjulegt. Gistum á Hörgslandi og það var mjög ljúft þegar við komum niður að vita af heita pottinum í seilingarfjarlægð. HÉR eru myndirnar, og HÉR er fréttin ;)
Núna er það ítalía framundan næsta fimmtudag. Það verður ekkert smá gaman að koma aftur á kunnuglegar slóðir. Hugsa sér að það er ekki lengra en 6 ár síðan ég bjó þarna úti, fyndið hvað tíminn lýður rosalega hratt. Það hefði getað verið í gær.
Fékk rosa góðar fréttir frá skólanum í dag. Fékk semsagt að vita að ég fæ að herbergið mitt 7.sept sem er eimmitt dagurinn sem ég á flug út. Ekkert smá góðar fréttir það þannig að ég verð ekki á hrakhólum fyrstu vikuna eins og ég var alveg eins að gera ráð fyrir. Þetta passar rosa vel. Kynningarvika byrjar 9.sept svo ég hef einn dag til að koma mér niður á jörðina.
Svo er það róður á morgun... róðrarlið vsó... hvað kem ég mér ekki í???




En já það verður greinilega eurovision stemmari um helgina ;)
Kv. Inga

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 22:01:50 / ingaer

Allir í skóla....

Allir að drífa sig í skóla í haust...lýtur út fyrir að það verði hoggið nokkuð stórt skarð á umhverfissviðinu í haust... erum 3 sem ætlum að drífa okkur í nám. Ég og Jón Þór í master og Guðrún að halda áfram með innanhúshönnun. Bara gaman... var eimmitt að fá upplýsingar frá skólanum um kynningarviku sem byrjar 9.sept, helv. gott þar sem ég var búin að kaupa mér flugmiða 7.sept ;)  Get ekki beðið.. ævintýraþráin aðeins farin að bæra á sér :)
Annars er maginn farinn soldið á flakk. Aðeins farin að hlakka/kvíða fyrir Hvannadalshnúk. Allt komið nokkurn veginn á hreint og guð minn góður það er nánst kominn miðvikudagur. Vona bara að veðrið verði gott:!: Svo bara rúmar 2 vikur í Ítalíu, ótrúlegt hvað tíminn lýður hratt....
Anyhow bara aðeins að láta í mér heyra ;)
Kv. Inga


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2008 15:30:36 / ingaer

Hausverkur og svona...

...já daman er ekki alveg frísk og telur þess vegna kominn tími á nýtt almennilegt blogg.
Er að kafna úr kvefi og hita og samviskubiti yfir því að fá mig ekki til að fara út í vinnu. Ætla samt aðeins að reyna að leiða þetta hjá mér því við kvefinu og hitanum get ég lítið gert og vinnan fer víst ekki neitt (því miður).
Héðan er nóg að frétta og fyrir það fyrsta er ég komin með íbúð úti í Glasgow! Ví.... þetta er að verða alveg scary raunverulegt og er meira að segja búin að kaupa mér miða út, aðra leið :) Svo það lýtur allt út fyrir það að ég sé að flýja land næsta haust.
Annars er búið að vera nóg að gera í fjallgöngum sem eru auðvitað æfing fyrir Hvannadalshnjúk sem og hinu og þessu. Orðið scary stutt í þessa fáránlegu göngu og skemmtilega stutt í Ítalíu. Það lýtur út fyrir að sumarið verði á rólegu nótunum svona fyrir utan sumarbyrjun. Þó er júní að vera útplanaðar og auðvitað ætla ég að skella mér með góðum hópi fólks á landsmót hestamanna á Hellu í júli.
Á miðvikudaginn var vínkynning á vsó. Reyndar var dagurinn svo rosalegur að annað eins er ekki í manna minnum. Fór í lengstu klippingu æfi minnar hjá færeyinginum mínum, þar sem hann sannfærði mig um að vera hármódel hjá sér. Við getum orðað það þannig að ég var hjá honum í 4,5 tíma og á eftir að fara aftur... Þessi langa klipping leiddi til þess að ég var of sein á vínkynninguna en náði þó smakki af öllum vínunum sem voru á boðstólnum. Eitt af þessum vínum stóð sérstaklega upp úr... þetta er svona ekta vín til að drekka ískalt úti í sól= Ítalía ;)

Veit það er bannað að auglýsa vín en maður verður samt að láta vita af svona. Vínið heitir Bass tuba, moscato d'asti og er hræðilega gott!
En já er að spá i að stúta í mig eins og einni verkjatöflu og reyna að ná þessu ógeði úr mér svo ég geti farið í fjallgöngu á morgun, samviskulaust :)
Kveðja
Inga ennþá 25

PS. Ætti ég að skipta yfir á 123.is?


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 16:37:41 / ingaer

Snilldar lag...


Scissor Sisters Lyrics




Er algjörlega húkkt á þessu lagi núna.. eitthvað svo mikið sumar 8)
Adios
Inga


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 14:53:21 / ingaer

Djúbbí djúbb

Waz up... það er smá þynnka hérna kannski ekki eins mikið þynnka eins og bara hrikalegur höfuðverkur! Fullt af frétta!
Það er núna bara verið á fullu í því að undirbúa komandi ferðalög. Gengið á fjöll tvisvar í viku og svo er búið að skipuleggja svona nokkurn veginn hvað á að gera í Ítalíu. Við Guðrún erum búnar að vera nokkuð duglegar að klífa fjöll.... búnar að fara tvisvar í viku frá páskunum. Búnar að labba á Esjuna of course x2, Keili, Helgafell, Úlfarsfell og svo núna seinast Móskarðshnjúka. Gönguformið er allt að koma og sífellt bætist við útbúnaðinn sem maður er að sanka að sér. Fórum semsagt á móskarðshnjúka og hér eru myndir. Fengum geðveikt veður og þetta var algjört æði. Skil ekki í mér að hafa ekki byrjað á þessu fyrr.... geðveikt!
Anyhow.... Ítalía. Vsó er að fara og ég, Guðrún og Hanna Sigga erum búnar að lengja ferðina og ætlum að vera í 10 daga. Fyrst er árshátíðin í Rapallo, rétt hjá Genova þar sem ég bjó :) Förum á fimmtudegi og verðum í Rapallo fram á mánudag. Þá ætlum við  3 að fara til Genova  og vera þar í eina nótt. Í Genova ætlum við aðeins að fara um og leigja bíl. Á þriðjudeginum ætlum við að keyra að Gardavatni stoppa þar, koma við í Veróna og eyða einum degi í Feneyjum. Svo förum við til Flórens og verðum þar í  2 nætur. Að lokum endum við í Milano þar sem við hittum Ómar, Heiðu og Eyjó. Þar verður tekið smá shopping spree... haha.... Þetta verður vonandi geðveikt! Hlýtur að vera :)
Jæja held ég ætli að fara að gera eitthvað við hausinn á mér!
Later
Ings



» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 17:11:09 / ingaer

Ánægjulegt...

... það er alveg afskaplega ánægjulegt þegar maður lítur til baka einhverra hluta vegna og getur ekki annað en glaðst yfir þeim ákvörðunum sem maður hefur tekið í lífinu. Fór að hugsa...  hversu ánægð ég er með þann stað sem ég er á í lífinu :p Sumum finnst ég kannski uppfull af sjálfsánægju en ég efast satt að segja um að ég væri svona ánægð með lífið akkúrat núna ef það væri ekki fyrir foreldra mína. Bestu foreldra í heimi sem höfðu vit á því að ala upp í manni heilbrigða skynsemi, vilja til að gera eitthvað af viti við líf sitt og seinast en ekki síst styrk til að framfylgja eigin óskum. Einhverja hluta vegna fannst mér td. aldrei koma neitt annað til greina en að fara í háskóla. Og þrátt fyrir að vera búin með B.Sc finnst mér heldur ekki koma til greina annað en að fara í M.Sc.
Ég er líka sérstaklega sátt við það að bíða með barneignir, húsakaup og svoleiðis STÓRAR skuldbindingar fyrr en ég er 100% tilbúin í það og á þeim stað í lífinu sem ég get séð mér fært að gefa mig að fullu í það hlutverk.
Ég er ótrúlega ánægð með að ég skildi bíða með masterinn og vinna í þessi 2 ár þar sem ég hafði ekki clue um hvað mig langaði að gera við líf mitt þegar ég útskrifaðist. Á sama hátt er ég fáránlega og ótrúlega mikið spennt fyrir þessu ævintýri sem byrjar í haust að fara eins míns liðs í framhaldsnám út í Glasgow þar sem ég þekki ekki hræðu og veit voða lítið út í hvað ég er að fara. Kannski soldið svipað ítalíu veseninu mínu, sem var örugglega ein besta lífsreynsla ever.
Stundum þarf maður virkilega að minna sig á það hvað maður hefur gert og hvernig manneskja maður vill vera :)

Ætli það sé ekki nógu af dýpt og sjálfskönnun í bili...

Stórt knús og reynið að vera góð við hvort annað ;)

Inga


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 09:42:43 / ingaer

Þvottavél óskast!

Vegna dauða þvottavélarinnar minnar vantar mig sárlega þvottavél ef einhver veit um einhvern notaðan gæðagrip sem gæti enst fram á haust!

Þetta er nú meira böggið!!!
Inga

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 20:50:26 / ingaer

Frí

framundan um næstu helgi... frá endalausu flakki amk. ÞEAS ef ég flakka ekki á Selfoss um helgina.
Var í heimsókn hjá Rakel um seinustu helgi. Komst þar með að því að innanlandsflug sucks. Komst á staðinn en hélt ég myndi ekki komast heim... þar sem fluginu seinkaði og seinkaði frameftir öllu. Komst nú samt heim á endanum.
Næstum ekkert planaðu um næstu helgi sem er ekkert smá góð tilbreyting..  flakkið verður soldið þreytt svona helgi eftir helgi. Trúi því eiginlega varla að það sé komin mars, vona bara að snjórinn fari að láta sig hverfa. Eiginlega alveg komin með nóg af þessari blessuðu úrkomu og ég held að bílinn minn sé líka orðinn ansi þreyttur á því.:s
Æ það er einhver bölvuð þreyta í gangi og ekkert meira um það að segja...
ciao í bili
Inga

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 22:33:23 / ingaer

Surprize!

Hvað haldið þið... stelpan búin að blogga! Hveró hveró hélt að ég hefði þetta í mér!
Núna er sko meira en lítið að frétta! Veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Ja ætli ég byrji ekki bara á fjölskyldunni. Karen og Biggi búin að skýra litla hnoðrann sinn og fékk hann nafnið Gunnar Hrafn sem ég held að ríki almenn sátt um að fari voða vel við hann. Enda ekkert smá sætur drengur þar á ferð. Bryndís að læra að sprauta í DK og tvíburarnir hennar Hrannar á fullu þessa dagana.
Seinasta helgi var frekar fullbókuð. Fór í óperuna á La traviata á föstudagskvöldið og svo var skrapp ég  með Önnu í surprize visit til Sólrúnar á laugardagsmorguninn, reyndar átti heimsóknin að vera líka til Bryndísar sem hún var en ég var búin að blaðra af mér við hana svo hún vissi af okkur. Þetta surprize tókst svona líka vel og Sóla vissi ekki hvað á sig stóð veðrið þegar við birtumst á tröppunum hjá henni, algjörlega grunlaus! Snilld.. ekkert nema snilld. Svo þetta var æðisleg helgi. Byrjuðum djammið heima hjá Sólu með drykkjuleikum og fleira mis sniðugu....
 vinkonurnar

Svo fórum ég, Bryndís, Anna, Sólrún, Óskar og Ari í party til sætu tvíburanna Jónasar og Kasper þar sem þessi líka "fallegi hundur" skemmti Bryndísi sérstaklega.
 Ekkert smá gaman og Jonas var svo búin að taka frá eitthvað svæði á skemmtistað fyrir okkur svo við fórum þanngað með hellings af fólki. Bryndís litla og Ari fóru reyndar snemma heim eftir mjög svo öflugan drykkjuleik, ekki saman þó að ég held ;)
En restin af girlunum misstum okkur á dansgólfinu... bara gaman! Sunnudagurinn var líka bara tekinn í pizzu og video og svo seinna sama dag í chinese og video. Rönkuðum við okkur á mánudaginn þegar ég sýndi dönum hvernig maður verslar með smá aðstoð frá girlunum, þegar heim var komið með alla pokana

bökuðum við bollur og súkkulaðiköku sem var ekkert ef ekki góð.

Snilldarferð og ég verð bara að þakka óskari og sólu fyrir frábæra þjónustu og litlu systir fyrir yndileg knús :lol: Elska fólkið mitt!!!!
Dreif mig svo bara beint á Self í gær og losaði mig við gjafir og fékk að nota þvottavélina hennar múttu þar sem mín gaf upp öndina aftur! Djö drasl!!!
Frekar þreyttur dagur í dag í vinnunni en það er eins gott að reyna að ná upp orku þar sem það er Akureyrarferð um næstu helgi þar sem ég og Rakel ætlum að fara á kostum! Rakel er með rosaplan og það veitir víst ekki af að hvíla sig því ef mér skjátlast ekki þá felur það í sér hellings djamm og hlátur og fleira fáránlega skemmtilegt!
Annað já humm... byrjuð í thai box um að gera að koma sér í form fyrir Hvannadalshnjúk göngu sem er bókuð um miðjan maí... hvað er eiginlega að mér?!?! Að detta þetta í hug! En hvað þetta verður gaman, ja amk eftir á 8|
Skólamálin já! Sótti um 6 skóla og er búin að fá svar frá 3 og þau eru öll jákvæð og þar sem ég get ekki dregið það mjög lengi að svara þeim þá er ég harðákveðin að fara til Glasgow í University of Glasgow og læra Civil engineering and management. Þetta eru 12 mánaða prógram svo þetta verður soldið úthald. En mér lýst rosa vel á skólann.. lýtur út eins og klipptur út úr Harry Potter, eins og þið sjáið hér að neðan, svo er hann víst lika voða góður sem skemmir ekki fyrir !
http://www.rcag.org.uk/images/gwuni.jpghttp://www.gla.ac.uk/media/media_20564_en.jpg

En já þetta er amk smá start til að bæta upp fyrir bloggleysið ;)
Adios í bili börnin góð!
Inga

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 23:22:30 / ingaer

Skrítið eða fyndið...

...Ég held að það sé fátt skrítnara eða vandræðalegra heldur en þegar vinir manns eða kunningjar taka upp á því að reyna að fix-a manni upp. Það lýtur ekki út fyrir að manni sé óhætt nema hafa afsökunin að maður sé að hitta einhvern eða maður sé giftur, eigi tvö börn og viðhald líka. Held að svona fix-up séu ekkert nema óþægileg fyrir alla. Amk fyrir aðilana sem verið er að reyna að spyrða saman.

Nóg um það, helgin var frekar róleg og easy going. Sviðsfundur á föstudaginn hjá umhverfissviðinu, það var voða fínt og endaði með ágætisdjammi um kvöldið.

Ég er voða nervus þessa dagana, bið spennt eftir að heyra frá skólum og vona að það gerist sem fyrst. Hef ekki clue hvað þeir taka sér langan tíma en vona bara hið besta. Er svona að spá í að sækja líka um DTU just in case.

Febrúar lítur út fyrir að verða frekar busy mánuður. Skírn hjá Karen og Bigga :), La traviata í óperunni :D, Harpa flytja út :S, Akureyrarferð 8)og fleira mis gott í gangi. Vona að veðrið verði skárra í feb en í jan svo maður geti kannski verið duglegur við að drífa sig í ræktina líka við og við. Badmintonið hefur líklega hinngað til bjargað mér frá því að verða algjört sófadýr á kvöldin :lol: Ansi freistandi eins og veðrið er búið að vera glatað!

Já og HAppy happy þar sem Danir unnu krótatíu og Frakkar urðu í þriðja á EM þá vann ég líklegast pottinn í vinnunni... ;) Tvö sæti af þrem rétt, ekki svo slæmt, þar sem ég veðjaði á

1. Spánn - Vitlaust
2. Króatía - rétt = 2stig
3. Frakkland - rétt = 1stig

Og þar sem ég held að enginn hafi giskað á að Danir ynnu þetta þá er ég amk ofarlega :D Gúddí gúdd

 

Anyhow reyni að blogga með ekki of löngu millibili ;)

Adios

 

Inga Pinga


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 78455
Glasgow
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1264 dögum
Glasgow
Leitarbox